Kaffihúsið á Álafossi

altKaffihúsið Álafossi er staðsett í einu af húsunum sem hýstu gömlu Ullarverksmiðjuna á Álafossi í Álafosskvosinni í Mosfellsbæ. 

Á  Kaffihúsinu er lagður metnaður í að vera með  heimagerðar  kökur, smárétti og  brauð. Boðið er upp á Celina kaffi frá Ítalíu, ljúffengt  heitt súkkulaði, einnig vöfflur og smurt brauð.  Á góðviðrisdögum  fyrir framan Kaffihúsið er pallur með  borðum og stólum , við þá eru hitalampar og ullarteppi frá Álafossi sem ylja gestum okkar.

Gallerí  er inn af Kaffihúsinu, þar býðst listamönnum til boða að halda sýningar á verkum sínum og gestum að njóta góðra veitinga og lista. Galleríið er tilvalinn staður fyrir hópa að hittast á og njóta góðra veitinga eða hittast yfir kvöldverði.

Gerum tilboð í kvöldverð fyrir hópa, vinsamlegsast hafið samband við Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Opnunartími Kaffihússins og Gallerísins

Sun- Mið frá kl. 11:00 - 22:00

Fim-Lau frá kl. 11:00 - 23:00

Eftir að allri vinnslu á ull  lauk í gömlu verksmiðjunum  voru húseignirnar seldar til einstaklinga sem  hafa lagt metnað sinn í að endurbyggja húsin, en þó til annarra nota en áður var. Árið 2000 eignaðist Gunnar Helgason þann hluta sem Kaffihúsið og Galleríið er staðsett og hefur innréttað það, fyrst sem íbúðarhúsnæði  en síðar aðlagað það rekstri Kaffihússins og Gallerísins. Kaffihúsið var opnað þann  30. apríl 2010 af þeim hjónum Guðlaugu Daðadóttur og Gunnari Helgasyni.